Stofnfundur Pókerklúbbsins Morgan Kane var hófst kl. 12:15 á Hótel Holti.
Á fundinum sátu eftirfarandi: SÓG, JG, PP, ÁHH og HS (sem kom 20 mínútum of seint því hann fann ekki hótel holt og ráfaði um miðbæ Reykjavíkur í 20 mínútur þar til að hann gafst upp og settist upp í bílinn á ný og keyrði beinustu leið á hótelið, en hann ratar ekki nema keyrandi eða eftir þó nokkra áfenga drykki á þennan stað, nema hvort tveggja sé, en ekki hefur reynt á það enn).
Eitthvað var rætt um í 20 mínútur, en fundarritari hefur ekki hugmynd um hvað það var, þar sem hann var, eins og áður segir að mæla göturnar.
Þó var búið að ákveða að SÓG væri formaður klúbbsins og JG meðstjórnandi. Einnig ákvað stjórnin að ákveðinn aðili væri ræstitæknir og var þá hort ákaflega stíft á HS, en hann skildi ekki skilaboðin svo það er enn á huldu hver er ræstitæknir klúbbsins.
Gjaldkeri er HÞH.
Eftirfarandi bókanir voru teknar niður:
- Klúbburinn er ekki fyrir konur og börn
- Annaðhvort verður spilað í heimahúsi eða ekki og var ákveðið að það yrði ekki. HS og ÁHH ætla að finna staði til að spila á. Best ef hægt væri að finna bakherbergi á skemtistöðum til að spila á.
- Spilað verður á Föstudögum
- Jakkaföt eru skilyrði
- Þetta er reyklaus klúbbur, þ.e. bannað verður að reykja á meðan spilað er, en það má eftir að spili lýkur (eftir miðnætti)
Eftirfarandi nöfn komu til umræðu um nafgift klúbbsins og voru greidd atkvæði um nöfnin og svo eftir stutta umræðu fékkst endanleg niðurstaða, en helst komu til greina nöfnin Morgan Kane og Johnny Cash (atkvæði eru innan sviga):
Þrumugosarnir (4), Morgan Kane(4), Pókerklúbbur Hjörleifs Sveinbjörnssonar (1), Snobbhænsn (1), Johnny Cash (3), Ring of Fire / Eldhringurinn (3), Hallbjörn Hjartarsson (0), Kúrekar Norðursins (1), Tango & Cash (2), THKHS (0), No bitzes (1), Greifinn af Monte Carlo (1), SS (2)
Eins og fram hefur komið þá var nafnið Morgan Kane valið.
Fundi var slitið kl. 13:30